Öryggisskápar
Eldtraustir skápar, uppgjörsskápar, heimilis- og lyklaskápar — sala og sérpantanir.
Við erum í góðu sambandi við ýmsa framleiðendur og eigum mikið úrval skápa á lager. Við veljum aðeins skápa sem hægt er að þjónusta og teljum í góðum gæðum. Góður öryggisskápur verður gulls ígildi þegar óprúttnir koma í heimsókn eða húsnæði brennur.
Þú færð það sem þú borgar fyrir — ódýr heimilisskápur veitir ekki sama öryggi og dýrari skápar. Við eigum á lager það sem flestir velja og getum sérpantað betri skápana eftir þörfum hvers og eins. Stundum bjóðum við líka endurgerða, notaða skápa.
Vinsælast hjá okkur
Uppgjörsskápar (Protector MP1 og MP2), heimilisskápar (Protector), lyklaskápar (Keysafe, Vectra o.fl.), eldtraustir skápar, litlir skápar t.d. í húsbíla, og seðlaskápar.
OLLE — nýtt umboð
Spænski framleiðandinn OLLE hefur valið okkur sem umboðsaðila á Íslandi — fallegir skápar í háum gæðaflokki, einnig sérsmíðaðir. Sendu okkur línu og fáðu verð.
Sérpantanir og magnpantanir (t.d. hótelskápar eða uppgjörsskápar) — hafðu samband í 510-8888 (velja 2).
Spurningar? Hringdu 510-8888 eða líttu við á Skemmuvegi 4, Kópavogi (blá gata, fyrir neðan BYKO).
Hringdu 510-8888