Bíllyklar
Smíði og forritun bíllykla og kubbalykla í langflestar gerðir — oftast samdægurs.
Bíllyklar verða flóknari með hverju ári, svo það getur verið kostnaðarsamt að týna síðasta lyklinum. Við gerum nýja lykla — líka kubbalykla — í langflestar gerðir bíla. Nánast allir bílar frá 1995 eru með ræsivörn: í lykilhausnum er örflaga sem þarf að forrita við tölvu bílsins (þetta tengist ekki fjarlæsingum). Við smíðum bíllykla með eða án flögu, oftast samdægurs, og gerum við læsingar og svissa ef það er vandamálið. Oft má skipta um lykilskel meðan þú bíður.
Nú getum við forritað BMW smart-lykilinn í flestar útgáfur F-gerðarinnar.
Allir bíllyklar týndir?
Misjafnt er eftir tegundum hvað þarf að gera, en yfirleitt dugar að tengja bílinn við tölvu til að para nýja lykilinn. Í sumum tilfellum þarf að taka tölvuna úr bílnum — þá er verkið kostnaðarsamara. Í flestum tilfellum komum við á staðinn og klárum verkið.
Ferlið hefst alltaf á því að þú sendir okkur beiðni. Við metum hvað þarf og hvað það gæti kostað, sendum þér beiðnina til baka í SMS (með verði) og þú undirritar rafrænt áður en við byrjum. Notast er við kennitölu og símanúmer verkbeiðanda; síðar má skrifa reikninginn á fyrirtæki. Ef lykill finnst eftir undirritun þarf póstur á [email protected] — þá hættum við verkinu en gjaldfærum það sem þegar er unnið.
Það sem við gerum
- Opnum flesta bíla, drögum lykilbrot úr sílindrum og gerum við sílindra og svissa.
- Smíðum og forritum lykla í flestar gerðir bíla — hvort sem lykill er til eða ekki.
- Eigum sílindra og svissa í flestar gerðir bíla á lager.
- Yfir 630 vöruflokkar — röðum lásunum upp fyrir lykilinn þinn.
- Mikið til af original lyklum með fjarstýringum, einnig fyrir ameríska bíla.
- Sérpöntum lykla í nær alla bíla og forritum þá.
- Lögum fasta sílindra (t.d. þegar fjarlæsing er notuð) og gerum þá eins og nýja.
- Skiptum um slitnar stýriskífur eða sílindra og breytum þeim svo lykillinn þinn passi — komdu með bílinn milli kl. 8 og 11 og fáðu hann sama dag.
Gott að vita
Við seljum að jafnaði aðeins tilbúna bíllykla — skorna og forritaða — svo allt sé eins og á að vera. Óforritaðir flögulyklar eru án ábyrgðar og ekki teknir til baka; í þeim tilfellum mælum við með að kaupa lykilinn hjá umboði. Lykill keyptur erlendis eða á vef: 5.000 kr. aukalega fyrir skurð og aðrar 5.000 kr. ef við forritum hann (óafturkræft).
Spurningar? Hringdu 510-8888 eða líttu við á Skemmuvegi 4, Kópavogi (blá gata, fyrir neðan BYKO).
Hringdu 510-8888