Húslyklar
Yfir 12.000 gerðir lykla á lager — við smíðum nánast hvaða lykil sem er.
Við eigum gríðarlegt úrval lykla á lager — yfir 12.000 mismunandi gerðir: kerfislyklar, húslyklar, bíllyklar, hirslulyklar, töskulyklar, hjólalásalyklar, póstkassalyklar, pípulyklar, skegglyklar, stjörnulyklar, peningaskápalyklar, tubular-lyklar, Abloy-lyklar, flatir lyklar, lyklar í farangursbox og fleira. Við hermismíðum lykla eftir lyklinum þínum, handsmíðum eftir skránni og tölvusmíðum eftir lykilnúmeri.
Húslyklar eru með misjafnan prófíl. Suma má fjölfalda, aðra ekki (t.d. lykla með lokaðan prófíl, sem á við um flest lyklakerfi og hágæða-öryggislykla). Í flestum tilfellum þarf leyfi frá formanni húsfélags, húsverði eða öðrum umsjónaraðila áður en slíkir lyklar eru fjölfaldaðir — eigandi kerfisins setti þessar reglur og okkur er ekki heimilt að fara framhjá þeim.
Hjá okkur fást háöryggissílindrar þar sem sýna þarf kort til að fá smíðaðan lykil — bor- og pikkfríir, fyrir bæði skorna og boraða lykla. Lásar er samstarfsaðili DormaKaba á Íslandi.
Spurningar? Hringdu 510-8888 eða líttu við á Skemmuvegi 4, Kópavogi (blá gata, fyrir neðan BYKO).
Hringdu 510-8888