Lyklabox & lyklaskápar

Sterk, veðurþolin lyklabox og lyklaskápar — ein vinsælasta varan okkar.

Við eigum lyklabox sem henta vel fyrir sumarbústaði, Airbnb eða heimilið — sterk, veðurþolin box sem festast á vegg og rúma 1–3 lykla. Ein vinsælasta varan okkar.

Við eigum líka lyklaskápa í miklu úrvali og getum sérpantað ýmsar gerðir, t.d. fyrir nokkur þúsund lykla. Flestir eru með mekanískum númeralásum. Til er meira að segja lyklaskápur sem lítur út eins og myndarammi.

Við aðstoðum við að setja kóðann inn ef óskað er. Auðvelt er að breyta kóðanum, en leggðu hann vel á minnið og prófaðu hann með boxið opið fyrst — ef kóðinn gleymist er nánast ógerlegt að komast inn án þess að skemma boxið.

Spurningar? Hringdu 510-8888 eða líttu við á Skemmuvegi 4, Kópavogi (blá gata, fyrir neðan BYKO).

Hringdu 510-8888
Til baka í Vörur