Læsingar, sílindrar & raflásar
Ávalir, euro-/prófílsílindrar, smekklásar, skápalásar og snjalllásar.
Til eru margar gerðir læsinga og sílindra. Algengastar eru ávalir sílindrar og euro-/prófílsílindrar. Ef þú ert í vafa máttu taka mynd af núverandi læsingu og koma með í verslunina eða senda okkur.
Ávalir sílindrar
Með ávala þarf yfirleitt ekki að mæla — nýjum sílinder er bara skellt í (oft má nota sömu skrúfur). Ef gamli sílinderinn stóð mikið út fyrir róshettuna getur verið gott að fá þykkari róshettu. Ávala má fá í lokuðu lyklakerfi (kort eða skráður ábyrgðarmaður).
Euro-/prófílsílindrar
Algengir inn í íbúðir á stigagangi. Taktu mynd af læsingunni með málbandi við lásinn svo við sjáum lengd/dýpt — hurðir eru misþykkar og læsingarnar ekki alltaf samhverfar um miðju. Fást fyrir lykil báðum megin, eða lykil að utan og sneril að innan, oft í nokkrum litum. Einnig fást smekklás-sílindrar, „snowman“-sílindrar fyrir hengilása, skápalásar og póstkassalæsingar.
Raflásar / snjalllásar
Við seljum m.a. Danalock — „snerill“ sem settur er innan á hurðina og virkar yfir Bluetooth. Opnaðu með símanum; með Danabridge má opna hvaðan sem er úr heiminum, og Danapad gefur veðurþolið takkaborð utan á (hentar vel fyrir Airbnb). Þú getur gefið tímastilltan aðgang og séð hvenær lásinn er notaður.
Kostur Danalock er að það má alltaf nota lykil í sílinderinn að utan ef rafhlöður klárast — og lásinn lætur vita áður en þær tæmast. Hann er settur þar sem snerillinn var áður, svo yfirleitt þarf ekki að breyta hurðinni.
Spurningar? Hringdu 510-8888 eða líttu við á Skemmuvegi 4, Kópavogi (blá gata, fyrir neðan BYKO).
Hringdu 510-8888