Fjarstýringar

Original og eftirmarkaðs fjarstýringar — oft tilbúnar á 15–20 mínútum.

Við eigum mikið úrval bæði original og eftirmarkaðs fjarstýringa. Fjarstýringu eða aukalykil með fjarstýringu er yfirleitt hægt að gera á 15–20 mín — sumir bílar þurfa lengri tíma. Oft má skilja bílinn eftir að morgni og fá hann síðdegis; stundum þarf að bóka tíma.

Stundum má lengja líf gömlu fjarstýringarinnar með því að skipta bara um skel — yfirleitt mun ódýrara en nýr lykill. Ef örflagan er brotin þarf þó nýjan lykil. Fjarstýringar verða líka rafhlöðulausar; þá þarf að skipta um rafhlöðu. Athugið að tegund rafhlöðu skiptir máli — t.d. henta IKEA-rafhlöður illa í nándarlykla og margar fjarstýringar.

Við mælum gegn því að hafa marga lykla á sömu kippu og bíllykilinn — það er algeng ástæða þess að hann brotnar og að svissinn slitnar óþarflega hratt.

Spurningar? Hringdu 510-8888 eða líttu við á Skemmuvegi 4, Kópavogi (blá gata, fyrir neðan BYKO).

Hringdu 510-8888
Til baka í Vörur