Góð ráð & fróðleikur
Hagnýt ráð frá lásasmiðum með reynslu síðan 1988 — um heimilið, bílinn og lyklakerfi.
Algengar spurningar
Já — sennilega er hvergi annars staðar á landinu jafn mikið úrval lykla og hjá okkur.
Húsnæði
Þegar flutt er í nýtt húsnæði er lykilatriði í öryggi að skipta um sílinder — eða láta okkur breyta honum fyrir nýjan lykil. Sama á við um eldri eign þar sem sílinder er orðinn slitinn.
Ef sílinder er úti er gott að smyrja hann með olíu á 1–2 mánaða fresti. Það er sérstaklega mikilvægt fyrir prófílsílindra, því pinnarnir neðan í sílindernum safna í sig ryki og ló.
Smyrjið láshúsin sjálf 1–2 sinnum á ári. Mjög mikilvægt fyrir 3-punkta skrár — þá skal smyrja alla hreyfanlega hluti. Þriggja punkta skrár geta verið dýrar, svo það borgar sig að halda þeim við.
Bilað 3-punkta (eða fleiri) láshús? Við finnum yfirleitt passandi láshús. Úrvalið er gríðarlegt, svo best er að mæla allt vel — við erum með sérstakt eyðublað fyrir það.
Mikil verðmæti á glámbekk? Öryggiskerfi og öryggisskápar eru til í miklu úrvali — ekki láta ræna verðmætunum.
Vantar lykla í hirslur, póstkassa eða annað? Við komum á staðinn og finnum bestu lausnina — smíðum lykla eða skiptum um læsingu.
Bílar
Flestir bílar eru með fjarlæsingar, svo sílindrar eru lítið notaðir og gróa fastir með tímanum. Þegar fjarstýring bilar eða verður rafmagnslaus er þá engin leið inn í bílinn.
Smyrðu alla sílindra einu sinni í mánuði og snúðu þeim með lykli (óþarfi að sprauta í svissinn).
Frosinn sílinder: sprautaðu ísvara inn, hinkraðu smá, sprautaðu svo olíu og opnaðu (ísvarinn eyðir olíunni sem fyrir er). Við mælum með Pro Long til smurningar — fæst hjá okkur.
Skrúfaðu niður rúðu þegar þú ferð út úr bíl í gangi (t.d. til að skafa frost) — bílar í gangi eiga það til að læsa sér.
Eigðu alltaf aukalykil. Aukalykill kostar margfalt minna en nýr bíllykill þegar allir lyklar hafa glatast.
Lyklakerfi & húsfélög
Í lokuðu lyklakerfi þarf rétta heimild til að taka út lykla — stundum þarf formaður húsfélags að gefa leyfi.
Komdu með skriflegt leyfi, eða láttu formann senda tölvupóst á [email protected] fyrirfram og tilgreina hver fær leyfi, hvaða lykil má smíða og hve mörg eintök. Þetta er gert til að tryggja öryggi viðskiptavina.
Neyðaropnanir
Við sinnum opnunum á opnunartíma verslunar. Hringdu í 510-8888 (velja 2).
Þarftu ráðgjöf? Hringdu 510-8888 eða líttu við á Skemmuvegi 4, Kópavogi.
Hringdu 510-8888